Arnar M. Ellertsson
Rafmagnstæknifræðingur
Starfsmenn Raftákns sjá um forritun á stjórnkerfi Hellisheiðarvirkjunar í samstarfi við Siemens í Þýskalandi
Nú þegar hafa tvær 45MW gufuaflsvélar verið teknar í notkun og unnið er að forritun og gangsetningu þriðju vélarinnar þessa dagana.
Stjórnkerfið er byggt á PCS7 skjákerfi frá Siemens og iðntölvubúnaðurinn er frá sama framleiðanda af S7-400 gerð.
Samhliða þessu verkefni sjá starfsmenn Raftákns einnig um forritun á ABB kerfiráði Orkuveitunnar sem staðsettur er að Bæjarhálsi.