Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa en helstu verkefni hennar tengjast hönnun raflagna og lýsingar, stýringum og sjálfvirkni.
Stjórn Raftákns er afar ánægð með að fá Evu Hlín til að leiða fyrirtækið í þeim tæknibreytingum sem nú eiga sér stað að því er kemur fram í tilkynningu.
Eva Hlín lauk M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Washington árið 2002 og Cand.Sc. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Hún stundar nú MBA nám með vinnu við Háskóla Íslands.
Eva Hlín hefur starfað sem verkefna- og vörustjóri hjá Wise síðan 2010 en þar áður sem verkfræðingur hjá Nobex og Samskipum. Hún er fædd árið 1977, gift Ágústi Torfa Haukssyni og eiga þau þrjár dætur. Þau búa á Akureyri en Raftákn er með starfsemi bæði á Akureyri og í Reykjavík.